Lífið í Fjölskyldugarðinum

þriðjudagur, febrúar 12, 2008

Update

Já ég hef ekki verið duglegastur við bloggið undanfarið, en hér kemur smá update. ég er kominn í 127 kíló, sem þýða 64 kíló farin. Ég ákvað því að bíða ekki lengur með 30 afmælisgjöfina og gjöfina til mín fyrir að missa 60 kíló. Ég fór því og fékk mér mitt fyrsta tattoo, og dem hvað það er flott þó ég segi sjálfur frá :D Allavega ég hélt smá boð heima hjá mömmu og pabba til þess að fagna þeim merka áfanga að ná þrítugsaldrinum. Ég bauð bara fjölskyldu minni, ömmu, systir mömmu og Eyjó. Ég eldaði mean chilli rétt og brauðrétt og hafði svo ljúffengan jógúrt ananas ís/krap í eftirrétt ásamt og ostum. Bara brilljant og gott. Og gjafirnar maður, vá eru þið ekki að grínast, var gersamlega slegin út af laginu þar, en ég fékk tvennar Joe Boxer náttbuxur og báðar í stærð Large og ég passaði í þær!!! tvennar nærbuxur sömu stærðar og ég passaði í þær líka, tvenn boli, sem ég reyndar passa ekki í alveg strax en það er ekkert of langt í það, og svo fékk ég nýtt golfsett frá mömmu og pabba. Takk kærlega fyrir. Þetta var alveg geggjaður dagur og þakka ég öllum þeim sem komu að honum kærlega fyrir frábæran dag.
Ég kvað að sinni. Takk fyrir mig :þ


VIÐBÓT!!!!
fyrir þá sem vilja sjá myndir af mér fyrir og eftir aðgerð, þá er hægt að skoða þær á facebook síðunni minn, en til að sjá hana verðið þið samt að gera ykkur facebook síðu.... :)
l8z y'all

8 Comments:

At 12 febrúar, 2008 10:52, Anonymous Nafnlaus said...

æði að þetta skyldi passa!! maður er bara ekki vanur sko! haha en maður er að venjast (hefði keyft líka L á Davíð sko!!!) þú verður enga stund að passa í bolina miða við hvernig þú heldur áfram!!

 
At 12 febrúar, 2008 11:06, Blogger BigJohn said...

nákvæmlega :D maður er ekki vanur að sjá þessar fatastærðir passa á mann, Takk kærlega fyrir

 
At 20 febrúar, 2008 11:39, Anonymous Nafnlaus said...

Vá flottur árangur :) Líka flott tattúið þitt ;) Mér finnst samt eiginlega að þú verðir að setja fyrir og eftir myndir hingað inn fyrir okkur sem hata Facebook/Myspace ;)

 
At 20 febrúar, 2008 16:43, Blogger BigJohn said...

er búinn að setja upp flickr account þannig að fólk getur séð eitthvað af myndum af mér þar... set link á þær við tækifæri

 
At 21 febrúar, 2008 01:42, Blogger BigJohn said...

http://wilwheaton.typepad.com/.shared/image.html?/photos/uncategorized/2008/02/20/wtf_jumper_slide.jpg


vá hvað þetta er mikil snilld!!

 
At 23 febrúar, 2008 08:56, Anonymous Nafnlaus said...

Holý shitcrap Ó'Lafur! Fékkstu Golfsett? Verður að bjóða mér með þér í Thundergolf í sumar!

Ég býð þér í hackysack, grill og heitann pott í staðinn, díll?

 
At 23 febrúar, 2008 10:41, Blogger BigJohn said...

líst vel á það.... látum verða af því sem fyrst

 
At 16 mars, 2008 16:34, Anonymous Nafnlaus said...

jæja minn kæri. núna er kominn marsmánuður og bara ekkert að frétta?

kv. brynja

 

Skrifa ummæli

<< Home