Lífið í Fjölskyldugarðinum

þriðjudagur, október 16, 2007

Aðgerðin er á morgun!!!

Sæl, nú er ekki laust við það að það sé kominn smá spenna og kvíði fyrir aðgerðinni. Reyndar var ég ekki að meika það að fara í skólann í dag og var því heima að þrífa og setja niður í ferðatösku, þar sem ég er að flytja til mömmu og pabba næstu 5-6 vikurnar eftir aðgerð. Ég er að fara að renna í Rvk núna þar sem að ég þarf að fá sprautu fyrir aðgerðina. Ég kem til með að hitta hana Ragnhildi kastljósmær á morgun, en eins og ég hef marg oft sagt að þá er kastljós fólkið að gera smá þátt um ástæðu þess að ég fer í þessa aðgerð. Alla vega langaði bara aðeins að kommenta á þetta svona rétt fyrir aðgerð. Heyri í ykkur seinna!

6 Comments:

At 16 október, 2007 16:05, Blogger BigJohn said...

ég er nú meiri kallinn sá að ég ætlaði að setja inn link á BMI síðu hérna um daginn en gleymdi því svo. þannig að hér kemur linkurinn....

http://www.nhlbisupport.com/bmi/bmi-m.htm

 
At 17 október, 2007 10:22, Anonymous Nafnlaus said...

Hæ frændi!

var að detta inn á þessa síðu hjá þér. Gaman að heyra af þér og hvað þér gengur vel.. finnst þetta frábært..

Stóri dagurinn í dag! vona að allt gangi vel.. hef þig í huga í dag ;)

á pottþétt eftir að halda áfram að fylgjast með þér ;)

knús
Ína Björg frænka

 
At 17 október, 2007 12:02, Anonymous Nafnlaus said...

stóri dagurinn í dag, búinn að bíða lengi og loksins er komið að þessu :) gangi þér ofsalega vel í dag og ég bíð spennt eftir næstu fréttum :)

kveðja Magga

 
At 17 október, 2007 15:56, Anonymous Nafnlaus said...

Gangi þér vel.. hugsa til þín :)

 
At 17 október, 2007 18:00, Anonymous Nafnlaus said...

gangi ther vel beiby

Kvedja Binni

 
At 18 október, 2007 22:59, Anonymous Nafnlaus said...

Vonandi gékk þér vel bestastur :* Hugsum rosa mikið til þín ;)

>>>KKNNÚÚÚSSS<<<

 

Skrifa ummæli

<< Home