Lífið í Fjölskyldugarðinum

þriðjudagur, júlí 03, 2007

síðasta vikan á Reykjalundi

Já þá er komið að síðustu vikunni minni hérna á reykjalundi og þetta er bara eiginlega ólýsanlegt hvað mér hefur gengið vel...missti 4,2 kg í síðustu viku og er kominn yfir 11 kg múrinn :D sem er bara geggjað sérstaklega þar sem að markmiðið var að missa 1o kíló á 5 vikum. Fer líklegast ekki í aðgerðina fyrr en í fyrsta lagi í lok ágúst og líklegra að það verði ekki fyrr en október. Það gefur mér þá bara enn meiri tíma til að missa fleiri kíló :D Alla vega ég þakka stuðninginn sem mér hefur verið veittur undanfarið ár.
kv. Ólafur G

2 Comments:

At 20 júlí, 2007 09:03, Anonymous Nafnlaus said...

Þetta er bara frábært hjá þér Óli :D Haltu áfram að gera góða hluti ;) Það er svo frábært hvað þér gengur vel!
kv.

 
At 22 júlí, 2007 22:23, Anonymous Nafnlaus said...

sæll félagi. anika var að segja mér að þú værir byrjaður að blogga aftur, lýst vel á það :) og innilega til hamingju með þennan frábæra árangur, er GEÐVEIKT stolt af þér!! haltu áfram að gera svona góða hluti, bara frábært :D

kveðja Magga

 

Skrifa ummæli

<< Home