Lífið í Fjölskyldugarðinum

mánudagur, mars 27, 2006

þrjár síðustu færslur sem ég hef gert undanfarið hérna hafa ekki náð að vistast vegna viðhalds á þjónustunni, er vægst sagt orðinn pirraður á því. Það er ástæða þess að ég hef ekki verið að blogga mikið undanfarið, fór í smá fýlu út í blogspot, vona að hún sé farin núna.
En allavega ég hef frá mörgu að segja eins og til dæmis ví að ég er búinn að fá fagur dökkgræna yarisinn minn ( og dísu:) og hann er alveg að svínvirka lítil eyðsla, en ég er búin að keyra hann samt rétt rúma 1000 kílómetra á 3 vikum.... þarf samt að fara að þrífa hann og helst teflon bóna hann til að verja hann aðeins fyrir saltinu sem er ausið á göturnar þessa dagana.

Og út í annað, ég er búinn að panta miða á kelduna og flugmiðann út og tel núna dagana þangað til að hátíðin byrjar er meget spenntur fyrir henni, nokkur eðal bönd þar á ferð í ár. Svo er líklegt að ég fari út til london í byrjun júní, og þá vegna vinnunar, þ.e. einn af strákunum af L17 fer út og ég fer með honum sem starfsmaður, það á eftir að vera svakastuð á okkur Frikka í London, stefnt er að fara á west end og jafnvel eitthvað fleira, það skýrist samt betur út eftir næstu helgi.

Ég er einnig kominn á biðlistann til að komast á Reykjalund yay!!! fyrir því! Þóra vinkona mín benti mér einnig á að tala við Ludvig sem er á Reykjalundi, hann gæti jafnvel og vonandi flýtt fyrir því að ég kæmist þar inn, ætla að hafa samband við hann í vikunni. Ég óska hér með einnig eftir einhverjum sem er til í að kíkja í ca 30 mínútna göngutúra með mér eins oft í viku og hægt er, helst einu sinni á dag. Er einnig búnað vera núna á Levaxin í næstum tvo mánuði og þvílík breyting, það að fá sér bara einu sinni á diskinn í matmálstímum er miklu léttara en áður, eina sem ég þarf að passa núna er að borða oftar minni máltíðir á milli, skyr og ávexti og þess háttar, og svo nottla að hafa ekki freistingar fyrir framan mig. Sérstaklega ekki súkkulaði og sæta drykki, því að þá bara fell ég og fall er vont. Lenti einmitt í því um daginn, þegar ég var búinn að vera í fráhaldi í ca 2 vikur og ganga vel, þá kom einn dagur þar sem að ég kolféll, það var nebbnilega til kökur í vinnunni og ég var á næturvakt ég gerði eiginlega ekkert nema að borða þá næturvakt, shitt hvað það var erfið nótt, aldrei hefði mér dottið það í hug að falla væri sona sárt og svekkjandi en sona er það og það var mikilvægt að falla svo lengi sem ég get nýtt mér það og forðast freistingarnar betur í framtíðinni. En allavega stoppa hér núna því að í enn eitt skiptið er uppfærsla á blogspot síðunni og ég verð að vista þetta bara í word.

7 Comments:

At 30 mars, 2006 12:07, Anonymous Nafnlaus said...

Getur bjallað í mig hvenær sem er til að koma í göngutúr, no prob!

 
At 30 mars, 2006 15:13, Blogger Unknown said...

Blésaður Óli! Búin að "adda" síðunni þinni í favorites hjá mér. Er hér með orðin fastagestur á síðunni.
Heyrðu, mig vantar alltaf einhvern með mér í göngutúraátak (Jói er svo latur, vill bara vera í tölvuleik, hehe). Svo þú verður bara að koma á nýja, fína bílnum þínum til Reykjavíkur á hverjum degi og draga mig út, hehehe!

Gangi þér vel (og vonandi sé ég þig bráðum. Stefnum bara á aðra útilegu í sumar, MÚS 2006).

 
At 30 mars, 2006 19:15, Blogger BigJohn said...

þokkalega og endilega einhvern tíman fyrir loka júli því þá er ég í 5 vikna sumarfríi ;)

 
At 31 mars, 2006 16:44, Anonymous Nafnlaus said...

verðum að halda nokkrar Skeldu-samkomur fyrir hátíðina, spá og spekulera í böndunum

 
At 31 mars, 2006 16:48, Anonymous Nafnlaus said...

Jebb stefnan sett á Skeldómanía IX í maí,þá ættu menn að vera komnir með some good shit í hendurnar... og nýju Tool plötuna úúúúúú jeee!

 
At 31 mars, 2006 17:42, Blogger BigJohn said...

líst vel á það drengir og stúlkur og svo verður allsherjar partý þegar ég hendi foreldrunum út og breyti fjölskyldugarðinum aftur í PORNVILLE!!! ARRRRGGHHH!!!! ROKK OG RÓL!!!!! ... sorry missti mig aðeins

 
At 03 apríl, 2006 10:07, Blogger Thor Magnusson said...

Hauts!

Ég er sko ekkert latur að fara út að labba. Ég bara nenni því ekki alltaf. En ég skal sko fara í nokkra göngutúra með ykkur góða fólkinu, það er ekkert mál.

 

Skrifa ummæli

<< Home